Karlmennsku- og kynþokkatríóið „Dætrasynir“ spilar kántrýslegin rokkabillípopplög undir sterkum áhrifum frá „Ennio Morricone“ og „Lúdó og Stefáni“. Frumburður hljómsveitarinnar, sem hefur hlotið nafnið „Á ferð og flugi“, er kominn út og fjallar fyrst og fremst um flókið samskiptamunstur kynjanna og er þar af nógu að taka. Meðlimir eru Baldur Ragnarsson (Ljótu hálfvitarnir, Skálmöld, Innvortis), Flosi Þorgeirsson (Ham, Otto Katz Orchestra) og Loftur S.
Read more
Karlmennsku- og kynþokkatríóið „Dætrasynir“ spilar kántrýslegin rokkabillípopplög undir sterkum áhrifum frá „Ennio Morricone“ og „Lúdó og Stefáni“. Frumburður hljómsveitarinnar, sem hefur hlotið nafnið „Á ferð og flugi“, er kominn út og fjallar fyrst og fremst um flókið samskiptamunstur kynjanna og er þar af nógu að taka. Meðlimir eru Baldur Ragnarsson (Ljótu hálfvitarnir, Skálmöld, Innvortis), Flosi Þorgeirsson (Ham, Otto Katz Orchestra) og Loftur S. Loftsson (Hraun, A band on stage). Ljóst er að bandið spannar marga ættliði og hefur þar af leiðandi breiða og góða innsýn inn í samskipti kynjanna. Þessi innsýn kemur berlega í ljós í lögum plötunnar og má þar nefna sem dæmi lögin „Hrein mey frá Heimaey“, „Ástarævintýri við Öskjuvatn“ og „StykkisHólmfríður“. Dætrasynir bjóða þér með í ferðalag um Ísland og nærsveitir þar sem ástir og örlög ráða ríkjum. Þú kemst í tæri við Dætrasyni á daetrasynir@daetrasynir.is eða í síma 663-3620.